Upplýsingar fyrir Nýnema
Það að taka þátt í félagslífinu er mikilvægur hluti af því að vera í háskóla. Kosið er í stjórn nemendafélags Háskólans á Bifröst í byrjun vorannar hvers árs og sér stjórnin um að skipuleggja helstu viðburði. Einnig er kosið í hátíðarnefnd á haustönn og sér hátíðarnefndin m.a. um Bifróvisjón, árshátíð Bifrestinga og hátíðarkvöld deildanna sem er galakvöldverður innan hverrar deildar.
Í upphafi skólaársins er haldinn samhristingur á vegum skólans og stendur nemendafélagið fyrir kynningu fyrir nýnema þar sem stjórn nemendafélagsins er kynnt, farið er yfir helstu viðburði og fleira. Bifröst er lítið samfélag þar sem allir þekkjast og tekið er vel á móti nýnemum. Á Bifröst eru allir boðnir og búnir að aðstoða hvern annan hvort sem það er námið, félagslífið, læra á þvottavélarnar, flutningar og svo mætti lengi telja.
Meðal viðburða sem stjórn nemendafélagsins stendur fyrir er Bifróvisjón og hátíðarkvöldverðir, dansleikir, trúbadorakvöld, Biftóberfest (októberfest Bifrestinga), karla/kvennakvöld, leðjubolti á haustönn í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, Hroki sem er keppni sem haldin er á sumarönn þar sem hlaupið er, hjólað og synt, sápuboltinn er einnig á sumarönn en þá er keppt í mjög svo sleipum fótbolta, ýmis konar menningarkvöld svo sem reglulega er pubquiz , karaókí og fleira.
Ýmis félög eru síðan starfrækt á Bifröst s.s. fótboltaklúbbur, hestamannafélag, spilafélag og fleira, svo allir ættu að geta fundið eitthvað sér við hæfi.




