Nemendur í Háskólanum á Bifröst

Allir sem hefja nám við Háskólann á Bifröst verða sjálfkrafa meðlimir Nemendafélagsins.

Sem meðlimir nemendafélagsins geta nemendur haft ýmis konar áhrif; boðið sig fram til setu í stjórn nemendafélagsins, í háskólaráð, sem deildarfulltrúar og fleira.

Nemendur geta einnig haft óbein áhrif með því að koma ábendingum á framfæri til stjórnar nemendafélagsins eða annarra fulltrúa nemenda, með því að kjósa þegar kosningar eiga sér stað, með því að mæta á viðburði og svo framvegis.

Stjórnin hvetur nemendur til að taka virkan þátt í félagslífinu og starfi nemendafélagsins.

 

Hér til hliðar má sjá stutta kynningu fyrir nýnema á Nemendafélaginu.

Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst