Lög félagsins

Lög Nemendafélags Háskólans á Bifröst

Samþykkt 23. september 2008

I. kafli

Heiti félags, heimili og hlutverk

1. gr.

Félagið heitir Nemendafélag Háskólans á Bifröst (The Students Organization of Bifröst University). Heimili þess og varnarþing er á Bifröst, Borgarbyggð.

2. gr.

Hlutverk Nemendafélagsins er að standa vörð um hagsmuni nemenda við Háskólann á Bifröst og vinna ætíð að bættum hag þeirra. Hlutverk þess er einnig að auka einingu meðal félagsmanna og vera vettvangur þeirra sem heildar innan háskólans sem utan.

II. kafli

Aðild að félaginu

3. gr.

Allir þeir er stunda nám við Háskólann á Bifröst njóta aðildar að félaginu.

III. kafli

Boðun funda, kosninga og tilkynninga

4. gr.

Fundarboð og kosningar skulu í samræmi við það sem í lögum þessum greinir tilkynnt með sannanlegum hætti og telst þá boðunin lögleg. Boða skal til fundar á heimasíðu Nemendafélagsins, www.skolafelag.is, auk þess skal senda út fundarboð á póstþjóni til áminningar. Félagsmenn geta ekki gert kröfu um ólögmæti funda eða kosninga hafi þeim ekki borist tilkynning á póstþjóni.

IV. kafli

Aðalfundur

5. gr.

Aðalfundur skal haldinn ekki síðar en í fimmtu viku vetrarannar samkvæmt dagskrá Háskólans á Bifröst. Til aðalfundar skal boða skv. 4. gr., hið minnsta tveimur vikum fyrir áætlaðan fundardag ella telst hann ólögmætur. Dagskrá fundarins skal fylgja fundarboði. Formaður setur fundinn og tilnefnir fundarstjóra sem stýrir umræðum. Á aðalfundi skal fylgja almennum fundarsköpum. Stjórn félagsins skal sjá til þess að kynning fari fram á starfsemi félagsins og á einstökum embættum fyrir aðalfund. Kosningar skal halda fyrir aðalfund en úrslit þeirra skulu kynnt á aðalfundi.

6. gr.

Til þess að tillaga á aðalfundi hljóti samþykki þarf samþykki meirihluta fundarmanna, að undanskildum lagabreytingatillögum sem fara skal með samkvæmt 36. gr. laga þessara.

7. gr

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Fundur settur
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Skýrsla gjaldkera
  5. Lagabreytingar
  6. Önnur mál
  7. Skýrsla kjörstjórnar um niðurstöður kosninga
  8. Ný stjórn félagsins kynnt
  9. Fundi slitið
8. gr

Fyrir aðalfund skal kosið í eftirfarandi stöður:

  1. Formaður stjórnar Nemendafélagsins
  2. Varaformaður stjórnar Nemendafélagsins
  3. Gjaldkeri stjórnar Nemendafélagsins
  4. Upplýsinga- og kynningarfulltrúi stjórnar Nemendafélagsins
  5. Tveir meðstjórnendur í stjórn Nemendafélagsins
  6. Tveir skoðunarmenn reikninga Nemendafélagsins
9. gr

Lok reikningsárs félagsins skal miðast við tvær vikur fyrir aðalfund. Reikningar skulu yfirfarnir af kjörnum skoðunarmönnum reikninga. Reikningar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir upphaf aðalfundar og vera undirritaðir af gjaldkera og skoðunarmönnum. Leitast skal við að fyrri stjórn geri upp þá reikninga sem tilheyra starfsári hennar. Ef afgangur verður af rekstri skal hann renna til næsta starfsárs.

10. gr.

Fráfarandi stjórn skal halda fund með nýkjörinni stjórn innan viku frá aðalfundi. Þar lætur hún nýja stjórn fá gögn er viðkoma Nemendafélaginu.

V. kafli

Haustfundur

11. gr.

Haustfundur skal haldinn eigi síðar en í þriðju viku haustannar samkvæmt dagskrá Háskólans á Bifröst. Til hans skal boðað skv. 4. gr., hið minnsta viku fyrir áætlaðan fundardag ella telst hann ólögmætur. Á haustfundi skal fylgja almennum fundarsköpum. Stjórn félagsins skal sjá til þess að kynning fari fram á starfsemi félagsins og á einstökum embættum fyrir haustfund. Kosningar skal halda fyrir haustfund en úrslit þeirra skulu kynnt á haustfundi.

12.gr.

Dagskrá haustfundar er eftirfarandi:

  1. Fundur settur
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Formaður Nemendafélagsins flytur milliskýrslu stjórnar
  4. Gjaldkeri flytur milliskýrslu um fjármál félagsins
  5. Skýrsla kjörstjórnar um niðurstöður kosninga
  6. Nýir fulltrúar nemenda kynntir
  7. Önnur mál
13. gr.

Fyrir haustfund skal Nemendafélagið sjá um kosningar í stöður háskólaráðsfulltrúa og varamanna þeirra, deildarfulltrúa og varamanna þeirra ásamt fulltrúa nýnema í stjórn Nemendafélagsins auk tveggja fulltrúa hverrar deildar í hátíðanefnd, alls átta fulltrúar. Berist ekki framboð í embætti varamanna háskólaráðs- og deildarfulltrúa viðkomandi deildar eða þeir nái ekki kjöri skv. lögum þessum, munu háskólaráðs- og deildarfulltrúar vera varamenn hvors annars. Stjórn Nemendafélagsins er heimilt að skipa í laus embætti úr hópi félagsmanna sem hafa kjörgengi.

VI. kafli

Stjórn félagsins

14. gr

Stjórn Nemendafélagsins skal skipuð sjö fulltrúum; formanni, varaformanni, gjaldkera, upplýsinga- og kynningarfulltrúa, tveimur meðstjórnendum og fulltrúa nýnema.

15. gr.

Formaður skal hafa umsjón með störfum stjórnar og stjórnarmanna og ber hann endanlega ábyrgð á málefnum félagsins. Formaður kemur fram fyrir hönd Nemendafélagsins í samskiptum við aðila innan sem utan háskólans. Formaður Nemendafélagsins boðar til stjórnarfunda og hefur umsjón með fundum þess. Formaður getur úthlutað verkefnum til stjórnarinnar eða til einstakra stjórnarmeðlima sem ekki eru sérstaklega skilgreind í lögum eða verklagsreglum félagsins. Formaður Nemendafélagsins situr háskólaráðsfundi fyrir hönd félagsmanna. Formaður tilnefnir einn úr stjórn Nemendafélagsins í stjórn Hollvinasamtaka Bifrastar. Formaður hefur prókúru fyrir félagið ásamt gjaldkera.

16. gr.

Varaformaður skal vera formanni innan handar og gegna starfi formanns í forföllum hans. Varaformaður er tengiliður fjarnema við félagið og tengiliður við erlenda nemendur skólans. Varaformaður er ritari á stjórnarfundum nema annað sé tilgreint. Varaformaður sér til þess að lög og reglugerðarbreytingar félagsins séu uppfærðar í samræmi við þær breytingar sem kunna að verða og séu birtar félagsmönnum með tryggilegum hætti.

17. gr.

 

18. gr.

Upplýsinga- og kynningarfulltrúi skal annast miðlun upplýsinga sem varða starfsemi félagsins. Hann skal sjá um heimasíðu Nemendafélagsins og að hún sé reglulega uppfærð. Upplýsinga- og kynningarfulltrúi skal ennfremur hafa umsjón með kynningum á Nemendafélaginu auk kynninga fyrirtækja og annarra aðila sem haldnar eru á vegum félagsins innan Háskólans á Bifröst.

19. gr.

Íbúaráðs- og fjölskyldufulltrúi skal vinna að málefnum og hagsmunum fjölskyldufólks í samráði við íbúaráð og Nemendafélagið. Íbúaráðs- og fjölskyldufulltrúi ásamt Nemendafélaginu skal hafa umsjón með Fjölskyldudeginum sem haldinn skal á hverju sumri.

20. gr.

Fulltrúi nýnema er tengiliður nýnema við félagið. Hann sinnir að öðru leyti þeim störfum er formaður felur honum.

21. gr.

Meðstjórnendur hafa atkvæðisrétt á stjórnarfundum. Láti stjórnarmaður af störfum eða getur ekki sinnt þeim af einhverjum ástæðum tekur meðstjórnandi við þeirri stöðu, þó aldrei stöðu Formanns.

22. gr.

Formaður Nemendafélagsins skal boða til stjórnarfunda á mánaðar fresti, hið minnsta. Á stjórnarfundum ræður meirihluti atkvæða úrslitum mála, ef atkvæði falla á jöfnu skal atkvæði formanns gilda tvöfalt. Fari meira en helmingur stjórnarmanna fram á stjórnarfund skal hann haldinn innan tveggja virkra daga.

23. gr.

Vilji stjórnarmaður víkja sæti skal hann tilkynna stjórn Nemendafélagsins það skriflega a.m.k. einni viku áður en hann víkur sæti. Skal viðkomandi nýta þann tíma til þess að ganga frá þeim málum sem viðkoma Nemendafélaginu og hann hefur með höndum. Ef stjórnarmaður víkur sæti tekur meðstjórnandi sæti hans. Meðstjórnandi getur þó aldrei tekið sæti formanns. Ef formaður víkur sæti skal varaformaður taka sæti formanns og meðstjórnandi sæti varaformanns.

24. gr.

Lýsi stjórnarmaður Nemendafélagsins vantrausti á annan stjórnarmann skal tillaga um það gerð skriflega og lögð fram fyrir formann einum sólarhring fyrir boðaðan stjórnarfund, sbr. 21. gr. Skal sá sem vantrausti er lýst á víkja sæti ef 2/3 stjórnarmanna samþykkir vantraustið og skal þá meðstjórnandi taka sæti hans.

25. gr.

Ef félagsmaður Nemendafélagsins hyggst lýsa vantrausti á stjórnarmann skal sá hinn sami leggja fram skriflega beiðni til stjórnar um félagsfund, með undirskrift 10% félagsmanna hið minnsta og skal þá stjórn boða til fundarins. Stjórn Nemendafélagsins er skylt að halda slíkan fund innan tveggja vikna frá framlagningu beiðninnar. Boða skal til fundarins samkvæmt 4. gr. með viku fyrirvara hið minnsta þar sem efni fundarins er tilgreint. Dagskrá fundarins skal fylgja fundarboði. Samþykki félagsfundur vantrauststillögu með 2/3 hluta atkvæða, tekur meðstjórnandi sæti með þeim hætti sem lýst er í 23. gr.

VII. kafli

Félagsfundir

26. gr.

Stjórn félagsins getur boðað til almenns félagsfundar til að ræða málefni félagsins og ákvarðanatöku í þeim málum er stjórn telur eðlilegt. Til félagsfundar skal boða með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. Seturétt á félagsfundum eiga allir félagsmenn Nemendafélagsins. Formaður félagsins setur fundinn og tilnefnir fundarritara og fundarstjóra sem stýrir umræðum. Framlögð tillaga á félagsfundi hlýtur samþykki ef meirihluti fundarmanna greiða henni atkvæði sitt. Á félagsfundum skal fylgja almennum fundarsköpum.

27. gr.

Félagsmenn Nemendafélags Háskólans á Bifröst geta með undirskrift hið minnsta 10% félagsmanna krafist almenns félagsfundar til að ræða málefni er varða félagið. Beiðni um slíkan fund skal vera skrifleg og í henni skal koma fram efni og ástæða fundarins. Er stjórn Nemendafélagsins skylt að halda slíkan fund innan tveggja vikna frá framlagningu beiðninnar. Boða skal til fundarins skv. 4. gr., með viku fyrirvara hið minnsta og tilgreina í fundarboði efni fundarins. Dagskrá fundarins skal jafnframt fylgja fundarboði.

VIII. kafli

Nefndir og ráð

28. gr.

Miðstjórn Nemendafélagsins er vettvangur kosinna fulltrúa nemenda til að samræma aðgerðir og stefnumörkun fyrir háskólasamfélagið á Bifröst. Í miðstjórn Nemendafélagsins sitja formaður, gjaldkeri og íbúaráðs- og fjölskyldufulltrúi Nemendafélagsins, allir réttkjörnir fulltrúar nemenda í háskólaráði, allir réttkjörnir deildarfulltrúar nemenda og formaður hátíðanefndar. Miðstjórn skal hittast á minnst mánaðar fresti og skal formaður Nemendafélagsins boða til fundar.

29. gr.

Hátíðanefnd skal hafa umsjón með og skipuleggja sameiginlega atburði sem venja er að halda hjá nemendum í Háskólanum á Bifröst, svo sem Bifróvisíon, Hátíðakvöldverði og Próflokaböll. Formaður Nemendafélagsins skal boða til og stjórna fyrsta fundi hátíðanefndar eigi síðar en einni viku eftir haustfund. Á þeim fundi skal nefndin skipta með sér verkum og kjósa sér formann. Formaður sér um að boða fundi nefndarinnar ásamt því að sitja í miðstjórn Nemendafélagsins. Hátíðanefnd fær styrk úr félagsmálasjóði en skal að öðru leyti vera sjálfstæð eining. Ef um afgang af styrkveitingu er að ræða skal hann renna til Nemendafélags Háskólans á Bifröst. Fráfarandi nefnd skal halda fund með nýkjörinni nefnd innan viku frá haustfundi. Þar lætur hún nýja nefnd fá gögn er viðkoma hátíðanefnd.

IX. kafli

Kosningar

30. gr.

Kosningar í stjórn Nemendafélags Háskólans á Bifröst skulu fara fram fyrir aðalfund sbr. III. kafla. Boða skal til kosninga skv. 4. gr. með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara, ella teljast kosningarnar ólögmætar.

31. gr.
  1. Stjórn Nemendafélagsins skal í síðasta lagi þremur dögum fyrir kosningar skipa þrjá fulltrúa í kjörstjórn.Leitast skal við að gæta jafnræðis milli deilda við skipan kjörstjórnar.Kjörstjórn skal sjálf kjósa sér formann.
  2. Auglýsa skal sérstakt netfang kjörstjórnar á vef Nemendafélagsins.
  3. Þeir sem sæti eiga í kjörstjórn fyrirgera rétti sínum til framboðs í viðkomandi kosningum.
  4. Kjörstjórn skal skipuð hið minnsta þremur dögum fyrir aðalfund.
  5. Kjörstjórn skal skipuleggja kosningar og sjá um framkvæmd þeirra í samvinnu við stjórn Nemendafélagsins.
  6. ) Kjörstjórn skal gæta hlutleysis og er hún bundin þagnar- og trúnaðarskyldu um framgang kosninga. Kosningar skulu vera leynilegar.
  7. Kjörstjórn skal varðveita öll gögn er viðkoma kosningum og geyma í öruggri vörslu.
32. gr.

Kosningarétt í félaginu hafa allir félagsmenn Nemendafélagsins. Kosningar geta að ákvörðun kjörstjórnar farið fram með rafrænum hætti til að allir félagsmenn eigi kost á að nýta kosningarétt sinn. Framkvæmd og framgangur rafrænna kosninga skal vera í samræmi við 30. gr. og 31. gr.

33. gr.

Kjörgengi til embætta innan félagsins hafa allir félagsmenn sem eru í námi eða hyggja á áframhaldandi nám við skólann. Framboð skulu vera skrifleg og undirrituð eða staðfest í gegnum skólanetfang frambjóðanda. Einungis er mögulegt að bjóða sig fram í eitt embætti við hverjar kosningar. Auglýsa skal eftir framboðum minnst tveimur vikum fyrir aðalfund. Framboðsfresti lýkur tveimur dögum fyrir aðalfund. Stjórn Nemendafélagsins er heimilt að framlengja þann frest.

34. gr.

Ef frambjóðandi er einn i´ framboði þarf hann helming greiddra atkvæða til að hljóta kosningu. Hafi engar framboðsyfirlýsingar borist til kjörstjórnar í embætti innan félagsins sem tilgreind eru í lögum þessum er heimilt að opna fyrir framboð á þeim fundi sem kjörið fer fram, þrátt fyrir að framboðsfresti sé lokið. Falli atkvæði jöfn við kjör skal hlutkesti ráða og skal framkvæmd þess vera í höndum kjörstjórnar. Hafi ekki hlotist lögleg kosning i´ öll embætti, skal nýkjörin stjórn skipa i´ laus embætti úr hópi félagsmanna sem hafa kjörgengi.

35. gr.

Kærur vegna kosninga skulu berast til kjörstjórnar á netfang sem Nemendafélagið tilgreinir skv. 29. gr. eigi síðar en 48 klst. eftir að niðurstöður kosninga eru birtar. Slíkar kærur tekur miðstjórn fyrir á miðstjórnarfundi eigi síðar en viku eftir kosningar og úrskurðar um kæruna á grundvelli laga þessara. Komist 2/3 hlutar miðstjórnar að þeirri niðurstöðu að lög félagsins hafi verið brotin við kosninguna, skal boðað til nýrra kosninga innan viku. Miðstjórn metur hvort þörf sé á nýjum kosningum í heild eða í einstök embætti. Ef engin kæra berst innan 48. klst. skal kjörstjórn sjá um að eyða öllum gögnum er viðkoma kosningum. Ef kæra berst skal viðkomandi gögnum eytt strax að loknum fundi miðstjórnar, þar sem úrskurðað var um kosninguna.

X. kafli

Slit á félaginu

36. gr.

Komi fram tillaga um slit á félaginu skal það tekið fyrir á aðalfundi eða á sérstaklega boðuðum fundi. Boða skal til fundarins með viku fyrirvara hið minnsta og þurfa 2/3 hlutar fundarmanna að greiða atkvæði með tillögunni til að hún verði samþykkt. Að lágmarki 50% félagsmanna þurfa að sitja fundinn til að hann teljist löglegur. Eignir félagsins ganga við slit til Háskólans á Bifröst til varðveislu þar til nemendur stofna annað félag í sama tilgangi eða sem telst arftaki Nemendafélagsins og fær það félag þá eignir þess.

XI. kafli

Breytingar og gildistaka

37. gr.

Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða sérstaklega boðuðum lagabreytingafundi samkvæmt 4. gr., boðuðum með viku fyrirvara hið minnsta. Þurfa 2/3 hlutar fundarmanna að greiða atkvæði með lagabreytingunni til að hún verði samþykkt. Stjórn er skylt að boða til lagabreytingafundar ef 10% félagsmanna óska þess en jafnframt er stjórn heimilt að boða til slíks fundar að eigin frumkvæði. Allir félagsmenn hafa rétt til að leggja fram tillögur að lagabreytingum en tillögum skal skilað skriflega til stjórnar eigi síðar en tveimur dögum fyrir boðaðan fund. Lagabreytingatillögur skulu auglýstar á tryggilegan hátt í samræmi við 4. gr. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum og skal efni hennar lýst. Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi eða öðrum lagabreytingafundi. Á lagabreytingafundi skal fylgja almennum fundarsköpum.

38. gr.

Félagsmönnum skulu birtar lagabreytingar félagsins með tryggilegum hætti innan einnar viku eftir að þær öðlast gildi sbr. 16. gr.

39. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi og falla eldri lög Nemendafélagsins Háskólans á Bifröst úr gildi.

Bifröst, Borgarbyggð.

Dagsetning. 23. september 2008.

Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst